Aldís Rún og Magnús Gauti sigruðu á Grand Prix móti KR og Keldunnar
Aldís Rún Lárusdóttir, KR og Magnús Gauti Úlfarsson, BH sigruðu á Grand Prix móti KR og Keldunnar, sem haldið var í Íþróttahúsi Hagaskóla laugardaginn 3. febrúar.
Í karlaflokki mættust tveir leikmenn úr 2. flokki í undanúrslitum, en báðir höfðu slegið meistaraflokksleikmenn út á mótinu. Thomas Charukevic, BH vann Birgi Ívarsson úr BH 4-3 í 8 manna úrslitum. Þá sigraði Gestur Gunnarsson, KR, Arnór Gauta Helgason úr Víkingi 4-2, einnig í 8 manna úrslitum. Gestur og Thomas mættust í öðrum undanúrslitaleiknum og sigraði Thomas 4-0. Í hinum undanúrslitunum áttust við Magnús Gauti Úlfarsson og Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, BH, og vann Magnús 4-2. Magnús lagði svo Thomas 4-1 í úrslitaleiknum (9-11, 12-10, 11-7, 11-8, 11-9).
Í kvennaflokki léku Aldís Rún Lárusdóttir, KR og Ársól Clara Arnardóttir, KR í öðrum undanúrslitunum og vann Aldís öruggan 4-0 sigur. Í hinum undanúrslitunum mættust Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, KR og Lára Ívarsdóttir, KR. Sá leikur var jafn og lauk með 12-10 sigri Auðar í oddalotunni. Aldís og Auður mættust því í úrslitaleiknum og hafði Aldís sigur 4-2 (11-5, 9-11, 11-5, 7-11, 11-7, 11-3).
Anna Sigurbjörnsdóttir, KR, sigraði í B-keppni kvenna og Ellert Kristján Georgsson, KR í B-keppni karla.
Styrktaraðilum mótsins, Keldunni, Borðinu, Hamborgabúllunni, Heimilistækjum og pingpong.is er þakkað kærlega fyrir vinningana.
Verðlaunahafar
Opinn flokkur kvenna
- Aldís Rún Lárusdóttir, KR
- Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, KR
3.-4. Ársól Clara Arnardóttir, KR
3.-4. Lára Ívarsdóttir, KR
Opinn flokkur karla
- Magnús Gauti Úlfarsson, BH
- Thomas Charukevic, BH
3.-4. Gestur Gunnarsson, KR
3.-4. Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, BH
B-keppni kvenna
- Anna Sigurbjörnsdóttir, KR
- Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, KR
- Þuríður Þöll Bjarnadóttir, KR
B-keppni karla
- Ellert Kristján Georgsson, KR
- Guðmundur Örn Halldórsson, KR
3.-4. Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, KR
3.-4. Slawomir Rekowski, BH
ÁMU (fyrst birt 3.2.2018)