Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Aldursflokkamót BH laugardaginn 21. janúar 2023

Aldursflokkamót Borðtennisdeildar BH mun fara fram laugardaginn 21. janúar nk. í stóra salnum í Íþróttahúsinu við Strandgötu, Strandgötu 53, Hafnarfirði. 

DAGSKRÁ OG FYRIRKOMULAG

11:00 Einliðaleikur hnokka f. 2012 og síðar

11:00 Einliðaleikur táta f. 2012 og síðar

12:00 Einliðaleikur pilta f. 2010-2011

12:00 Einliðaleikur telpna f. 2010-2011

13:00 Einliðaleikur sveina f. 2008-2009

13:00 Einliðaleikur meyja f. 2008-2009

14:00 Einliðaleikur drengja f. 2005-2007

14:00 Einliðaleikur stúlkna f. 2005-2007

Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 20. janúar nk. kl. 14:00.

Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags. Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.

Þátttökugjöld: 2.000 krónur á mann. Gjaldið greiðist á mótsstað eða inn á bankareikning Borðtennisdeildar BH: Kt: 620709-0180 0544-26-16207  Setjið í skýringu við greiðsluna fyrir hvaða leikmann greitt er. Sendið afrit á [email protected].

Senda skal tilkynningu við millifærslu á netfangið [email protected]  og setja inn kennitölu leikmanns, sem greitt er fyrir.

Mótsstjórn skipa Ingimar Ingimarsson, Tómas Ingi Shelton og Jóhannes Bjarki Urbancic 

Skráningar og spurningar berist til [email protected]

Aðrar fréttir