Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Aldursflokkamót BH laugardaginn 9. október 2021

Þá er keppnisveturinn að hefjast og ætlar BH að hafa fyrst mót vetrarins fyrir börn og unglinga í stóra salnum í BH næstkomandi laugardag 9. október.  Skráning þarf að berast fyrir nk. föstudag 8. október kl. 13.00. hér að neðan er að finna hlekk á auglýsingu fyrir mótið:

https://bordtennis.is/wp-content/uploads/2021/10/Aldursflokkamot-BH-oktober-2021-PDF.pdf

Fyrirkomulag mótsins er þannig að keppt verður með upp&niður fyrirkomulagi þannig að leikmenn raðast í deildir eftir styrkleika og geta færst upp og niður eftir því sem líður á mótið. Markmið mótsins er að allir leikmenn fái jafn marga leiki við sinn styrkleikaflokk. 

Leiknar verða 3 umferðir í þriggja manna riðlum þar sem allir leika við alla. Sá sem endar efst í riðlinum að lokinni hverri umferð færist upp og sá sem endar neðst í riðlinum færist niður. 

Veitt verða þátttakendaverðlaun fyrir alla keppendur í Mini Cadet og verða veittar medalíur fyrir 1.-3. sæti í öllum deildum í U21 flokki.

Þáttökugjald er 1500kr fyrir báða flokka.

Aðrar fréttir