Aldursflokkamót BH nk. laugardaginn 9. febrúar 2019
Aldursflokkamót Borðtennisdeildar BH mun fara fram laugardaginn 9. febrúar nk. í stóra salnum í Íþróttahúsinu við Strandgötu, Strandgötu 53, Hafnarfirði
Dagskrá og fyrirkomulag
11:00 Einliðaleikur hnokka f. 2008 og síðar
12:00 Einliðaleikur táta f. 2008 og síðar
13:00 Einliðaleikur pilta f. 2006-2007
13:00 Einliðaleikur telpna f. 2006-2007
14:00 Einliðaleikur sveina f. 2004-2005
14:00 Einliðaleikur meyja f. 2004-2005
15:00 Einliðaleikur drengja f. 2001-2003
15:00 Einliðaleikur stúlkna f. 2001-2003
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 8. febrúar nk. kl. 17:00
Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.
Þátttökugjöld: 1.000 krónur á mann..Gjaldið greiðist á mótsstað eða inn á bankareikning Borðtennisdeildar BH: : Kt: 620709-01800544-26-16207 Setjið í skýringu við greiðsluna fyrir hvaða leikmann greitt er. Sendið afrit á [email protected].
Senda skal tilkynningu við millifærslu á netfangið [email protected] og setja inn kennitölu leikmanns, sem greitt er fyrir.
Mótsstjórn skipa Tómas Ingi Shelton og Jóhannes Bjarki Urbancic
Skráningar og spurningar berist til [email protected]
Auglýsingu um mótið er að finna hér.