Aldursflokkamót Borðtennisdeildar KR 28. apríl
Borðtennisdeild
KR heldur síðasta mótið í aldursflokkamótaröð Borðtennissambands Íslands 2018-2019
sunnudaginn 28. apríl 2019 í Íþróttahúsi Hagaskóla, Neshaga 3 (miðinngangur). Keppni
hefst kl. 11.
Aldursflokkar
kl. 11:00 Einliðaleikur hnokka f. 2008
og síðar
kl. 14:00 Einliðaleikur táta f. 2008
og síðar
kl. 11:00 Einliðaleikur pilta f. 2006-2007
kl. 15:00 Einliðaleikur telpna f. 2006-2007
kl. 12:30 Einliðaleikur sveina f. 2004-2005
kl. 15:00 Einliðaleikur meyja f. 2004-2005
kl. 14:00 Einliðaleikur drengja f. 2001-2003
kl. 14:00 Einliðaleikur stúlkna f. 2001-2003
Hver unglingur má aðeins leika í
einum aldursflokki. Átta efstu í hverjum flokki fá stig í
aldursflokkamótaröðinni. Þetta er síðasta mótið í mótaröðinni á þessu
keppnistímabili og að móti
loknu verða einnig veitt verðlaun fyrir heildarárangur í mótaröðinni. Sjá má
stöðuna í mótaröðinni á vef Borðtennissambands Íslands.
Fyrirkomulag keppni
Keppt er í riðlum og spilað er með
útslætti upp úr riðlinum. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik. Raðað
verður í töflu samkvæmt keppnisreglum eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ.
Leikið verður á Stiga expert borðum
með hvítum 3ja stjörnu Stiga kúlum.
Mælst er til þess að leikmenn leiki í
búningum síns félags.
Verðlaun verða veitt fyrir fjögur
efstu sætin í öllum flokkum. Einnig verða veitt þátttökuverðlaun í flokki 11
ára og yngri.
Þátttökugjöld: 1.000 krónur á
mann. Gjaldið greiðist í reiðufé á
mótsstað eða inn á bankareikning Borðtennisdeildar KR: 0137-26-008312,
kennitala 661191-1129. Senda skal tilkynningu við millifærslu á netfangið [email protected] og setja inn kennitölu leikmanns, sem greitt er
fyrir.
Skráning fer fram á vef Tournament Software (http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=E96E6206-ACC7-4A67-BBB9-981DD3C47092) til kl. 22 þriðjudaginn 23. apríl 2019. Setja skal
kennitölu sem „Member ID“. Á vef BTÍ (www.bordtennis.is) eru
leiðbeiningar um stofnun reiknings og skráningu á Tournament Software. Þeir,
sem hafa áður stofnað reikning til að skrá sig á mót geta notað hann aftur. Ef
ekki gengur að skrá sig á vef Tournament Software má senda skráningu til
mótsstjórnar fyrir kl. 22 þriðjudaginn 23. apríl 2019.
Kennitölur
skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ!
Dregið verður í Íþróttahúsi Hagaskóla miðvikudaginn 24. apríl
klukkan 18:00. Eftir að dregið hefur verið í mótið verður ekki bætt við
keppendum, nema að um sannanleg mistök mótsstjórnar sé að ræða. Drátturinn
verður birtur á vef Tournament Software.
Mótstjórn:
Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, gsm. 868 6873, [email protected]
Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]
Magnús Stefánsson, gsm. 865
3884, [email protected]
Yfirdómari: Finnur Hrafn Jónsson.
Bréf um mótið:
ÁMU