Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Aldursflokkamót Borðtennisdeildar KR verður haldið 24. september

Borðtennisdeild KR heldur fyrsta mótið í aldursflokkamótaröð Borðtennissambands Íslands 2016-2017 laugardaginn 24. september 2016 í Íþróttahúsi Hagaskóla, Neshaga 3 (miðinngangur). Keppni hefst kl. 14 en verið er að reyna að fá húsnæðið fyrr, svo hægt sé að byrja fyrr.

Aldursflokkar

  • 14:00 Einliðaleikur hnokka f. 2006 og síðar
  • 16:30 Einliðaleikur táta f. 2006 og síðar
  • 14:00 Einliðaleikur pilta f. 2004-2005
  • 16:30 Einliðaleikur telpna f. 2004-2005
  • 14:00 Einliðaleikur sveina f. 2002-2003
  • 16:30 Einliðaleikur meyja f. 2002-2003
  • 15:30 Einliðaleikur drengja f. 1999-2001
  • 16:30 Einliðaleikur stúlkna f. 1999-2001

Hver unglingur má aðeins leika í einum aldursflokki. Átta efstu í hverjum flokki fá stig í aldursflokkamótaröðinni.

Fyrirkomulag keppni

Keppt er í riðlum og spilað er með útslætti upp úr riðlinum. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik. Raðað verður í töflu samkvæmt keppnisreglum eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ.

Leikið verður á Stiga expert borðum með hvítum 3ja stjörnu plastkúlum.

Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.

Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.

Þátttökugjöld: 1.000 krónur á mann. Ef þátttökugjald er greitt í síðasta lagi 21.9. kl. 20 er veittur afsláttur og er þátttökugjaldið þá 800 krónur. Gjaldið greiðist inn á bankareikning Borðtennisdeildar KR: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129. Senda skal tilkynningu við millifærslu á netfangið [email protected] og setja inn kennitölu leikmanns, sem greitt er fyrir.

Skráning fer fram á vef Tournament Software (http://www.tournamentsoftware.com) til kl. 20 miðvikudaginn 21. september 2016. Setja skal kennitölu sem „Member ID“. Á vef BTÍ (www.bordtennis.is) eru leiðbeiningar um stofnun reiknings og skráningu á Tournament Software. Þeir, sem hafa áður stofnað reikning til að skrá sig á mót geta notað hann aftur. Ef ekki gengur að skrá sig á vef Tournament Software má senda skráningu til mótsstjórnar fyrir kl. 20 miðvikudaginn 21. september 2016.

Kennitölur skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ!

Dregið verður í Íþróttahúsi Hagaskóla fimmtudaginn 22. september klukkan 17:00. Eftir að dregið hefur verið í mótið verður ekki bætt við keppendum, nema að um sannanleg mistök mótsstjórnar sé að ræða. Drátturinn verður birtur á vef Tournament Software.

Mótstjórn:

Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]

Guðrún Gestsdóttir, hs. 551 4949, [email protected]

Magnús Stefánsson, gsm. 865 3884, [email protected]

Yfirdómari: Verður tilkynntur síður.

Bréf um mótið: unglingamot-kr-i-bordtennis-24-9-2016

 

ÁMU

 

Aðrar fréttir