Alexander Ivanov fékk gull og fleiri á palli í Osló
Íslenski unglingalandsliðshópurinn lék fjölmarga leiki á seinni degi Regionscup í Osló. Liðið náði góðum árangri á mótinu og unnu allir leikmennirnir leik.
Alexander Ivanov sigraði í flokki Jenter/gutter 13A. Fleiri íslenskir leikmenn fengu verðlaun þennan dag, eins og kemur fram hér fyrir neðan.
Helstu úrslit íslensku unglinganna 3. apríl:
Alexander Ivanov sigraði í flokki Jenter/gutter 13A og varð í 3.-4. sæti í flokki Herre junior 17B.
Birgir Jónsson varð í 2. sæti í flokknum Gutter 12B
Björgvin Ingi Ólafsson náði 2. sæti í flokki Herre Junior 17A og í 5.-8. sæti í flokknum Herrer eldre junior
Einar Karl Kristinsson varð í 2. sæti í flokki Gutter 12 og í 5.-8. sæti í flokki Jenter/gutter 13A
Benedikt Jóhannsson náði 3.-4. sæti í flokki Jenter/gutter 13A
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir varð 3.-4. sæti í flokknum Jenter 12
Helena Árnadóttir varð í 3.-4. sæti í flokknum Jenter 12
Sól Kristínardóttir Mixa náði 3.-4. sæti í flokki Herre junior 17B og í 5.-8. sæti í flokki Herrer E.
Tómas Holloway náði 3.-4. sæti í flokki Gutter 12 og 5.-8. sæti varð í flokki Jenter/gutter 13A
Steinar Andrason hafnaði í 5.-8. sæti í flokknum Herrer eldre junior
Daði Meckl hafnaði í 9.-16. sæti í flokki Gutter 12
Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir hafnaði í 9.-16. sæti í flokki Herrer E
Myndir frá Tómasi Inga Shelton unglingalandsliðsþjálfara.