Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Arctic mótið á Grænlandi

Í dag heldur utan hópur frá Íslandi á Arctic mótið á Grænlandi.  Hefst mótið á morgun 15. maí og stendur fram á sunnudag 17. maí.  Tveir karlahópar fara út og einn kvennahópur.  Þjálfari verður Kristján Viðar Haraldsson í forföllum Guðmundar Stephensen og fararstjóri Hlöðver Steini Hlöðversson.

Á mótinu verða lið frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.  Liðakeppni fer fram á föstudag og fyrir hádegi á laugardag.  Einstaklingskeppni hefst síðan kl. 13.00 á laugardaginn og undanúrslit og úrslit í einstaklingskeppninni fer fram á sunnudeginum.

Aðrar fréttir