Arctic Open 2019
Alþjóðlega borðtennismótið
Arctic Open verður haldið í 7. skipti í ár og verður helgina 17.-19. maí í TBR
húsinu.
Landslið Grænlands
og Færeyja etja kappi við íslenska landsliðið í liðakeppni karla og kvenna. Þá
verður leikið í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik.
Færeyjar mæta með
tvö karlalið og tvö kvennalið, 6 karla og 6 konur. Grænlendingar koma með tvö
karlalið og eitt kvennalið, 7 karla og 4 konur. Ísland sendir þrjú karlalið og þrjú
kvennalið.
Tímaáætlun er eftirfarandi:
Föstudagur 17. maí:
16:50 Setningarathöfn
17:00 Tvenndarleikur (leikið í fjórum riðlum og svo
með útslætti)
Laugardagur 18. maí:
10:00 Liðakeppni karla og kvenna (fimm umferðir)
Sunnudagur 19. maí:
10:00 Tvíliðaleikur karla og kvenna (leikið í
tveimur riðlum og svo með útslætti)
14:00 Opinn einliðaleikur karla og kvenna (leikið í
riðlum og svo með útslætti)
17:30 Verðlaunaafhending
Leikið verður með hvítum STIGA*** keppniskúlum. Öll úrslit úr mótinu verða birt á vef Tournament Software og gilda innbyrðis leikir Íslendinga til stiga á styrkleikalista BTÍ.
Nánar um opið
einliðaleiksmót sunnudaginn 19. maí:
Allir
borðtennisleikmenn í 1. flokki og meistaraflokki karla og kvenna eru velkomnir.
Skráningar berist viku fyrir mót (í síðasta lagi föstudaginn 10. maí) á
netfangið [email protected].