Ársþing 2025: Tillögur til breytinga á reglugerðum
Ársþing BTÍ verður haldið í B-sal íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardalnum kl. 14 sunndaginn 11. maí nk. Sjá dagskrá ásamt upplýsingum um fjölda þingfulltrúa. Kjörbréf er aðgengilegt hér fyrir neðan og er mælt með því að fulltrúar félaga komi með slík með sér en annars verða óútfyllt kjörbréf einnig aðgengileg á staðnum.+
Eftirfarandi tillögur hafa borist frá Ástu Urbancic og Björgvini Inga Ólafssyni til breytinga á reglugerðum til umræðu á ársþingi BTÍ 11.5. 2025
Tillögur frá Ástu Urbancic
Reglugerð um flokkakeppni
Viðbót við 12. gr. um Úrslitakeppni
Sama fyrirkomulag skal vera á leikjum í úrslitakeppni og er viðhaft í deildakeppni vetrarins. T.d. ef leikið er Swaythling kerfi með tvíliðaleik um veturinn, þar sem mest eru leiknir 10 leikir, skal einnig leika með því fyrirkomulagi í úrslitakeppninni.
Röksemdafærsla:
Það skýtur skökku við að um veturinn þurfi að vinna 6 leiki til að vinna deildarleik, en þegar sæti í úrslitum eða sjálfur Íslandsmeistaratitillinn er í húfi sé nóg að vinna 3 leiki. Ef þessi aðferð væri yfirfærð yfir á t.d. fótbolta, væri það eins og í úrslitaleiknum sé aðeins leikinn fyrri hálfleikur og þá ráðist úrslitin kannski á gullmarki ef er jafnt í hálfleik.
Önnur viðbót við 12. gr. um Úrslitakeppni
Leikmenn eru aðeins gjaldgengir í úrslitakeppnina í deildinni ef þeir hafa leikið í a.m.k. 25% viðureigna í deildinni. Í deildakeppni með 10 leikjum, eins og í 1. og 2. deild karla þarf því að hafa leikið í þremur viðureignum en eins og kvennadeildin var spiluð í vetur væri nóg að spila einn leik.
Röksemdafærsla:
Það á ekki að vera hægt að kaupa inn nýja leikmenn beint í úrslitakeppnina, þ.e. leikmenn sem ekkert hafa leikið með liðinu um veturinn, heldur ætti liðin sem leika í úrslitakeppninni að vera þau lið sem hafa leikið í deildinni um veturinn og unnið sé inn sæti í úrslitum.
Viðbót við 5. gr. keppnisreglna
Núverandi 5. grein.
Leikmaður getur skipt um félag einu sinni á leikári. Félagaskiptin tilkynnist mótanefnd BTÍ á þar til gerðu eyðublaði sem beri með sér að leikmaður sé skuldlaus við fyrra félag eða með tölvupósti til mótanefndar og fyrra félags þar sem skuldleysið er staðfest. Félagaskiptin taka gildi þann dag sem formaður mótanefndar undirritar eyðublaðið eða staðfestir móttöku tölvupóstsins
Við bætist:
Leikmenn sem snúa aftur til keppni af óvirka styrkleikalistanum þurfa ekki að tilkynna félagaskipti, þótt þeir keppi fyrir nýtt félag.
Röksemdafærsla:
Leikmenn eru teknir út af virka styrkleikalistanum á vefnum eftir að um þrjú ár eru liðin frá því að þeir kepptu síðast. T.d. eru keppendur sem kepptu síðast árið 2021 teknir út af virka listanum vorið eða sumarið 2025. Núna eru engin tímamörk á því hverjir þurfa að tilkynna félagaskipti og hverjir ekki en það er æskilegt að einhver viðmið séu til um það.
Tillögur frá Björgvini Inga Ólafssyni
Tímabundin takmörkun keppnisréttar eftir fall milli flokka
Leikmaður sem fellur niður um flokk í nýjustu keyrslu styrkleikalista fær ekki keppnisrétt í flokknum fyrr en hann hefur verið skráður í þann flokk í að minnsta kosti tvær samfelldar keyrslur styrkleikalista.
Markmið þessarar reglu er að tryggja að leikmenn sem eiga greinilega heima í efri flokkum, detti ekki tímabundið niður um flokk og taki þátt á móti sem þeir eru augljóslega of sterkir fyrir.
Þetta á þá bæði við fall úr meistaraflokki niður í 1. flokk og sömuleiðis fall úr 1. flokki niður í 2. flokk.
Mat á nýjum leikmönnum – tillaga um breytingu á 6. grein um styrkleikalista BTÍ
Samkvæmt 6. grein er skráning nýrra leikmanna inn á styrkleikalista byggð á úrslitum á fyrsta móti sem leikmaður tekur þátt í. Þetta fyrirkomulag hefur ákveðna galla.
Sem dæmi gæti leikmaður sem aldrei hefur keppt skráð sig í meistaraflokk á móti, tapað örugglega fyrir leikmanni með 2500 stig og verið skráður inn með 2475 stig. Slík niðurstaða endurspeglar ekki raunverulegan styrkleika viðkomandi leikmanns.
Þetta á einnig við í öfugum tilvikum, þar sem nýr leikmaður getur mætt aðeins mun veikari andstæðingum og verið skráður of neðarlega, sem getur haft neikvæð áhrif á stig þeirra leikmanna sem hann vinnur.
Til að bregðast við þessu legg ég til að sett verði skýr skilyrði um að nýr leikmaður komist aðeins inn á styrkleikalista þegar annað af eftirfarandi hefur átt sér stað:
Hann hefur spilað að lágmarki x leiki, eða
Hann hefur unnið að minnsta kosti x leiki.
T.d 10/5 eða 8/4.