Ársþing Borðtennissamband Íslands 2022 verður haldið 2. apríl 2022 (ath. breyttan fundartíma)
Borðtennisþing Borðtennissambands Íslands verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal laugardaginn 2. apríl 2022 kl.13:00 kl. 15:00, sbr. 5. gr. laga sambandsins.
Kjörbréf til aðildarfélaga verða send út á næstu dögum.
Frestur til að skila inn breytingatillögum á lögum og reglugerðum er 21 dögum fyrir þingið eða í síðasta lagi 12. mars. Breytingatillögur skulu sendar á [email protected] Ekki verður tekið við breytingatillögum eftir þann tíma. BTÍ mun senda breytingatillögur út til kynningar tveimur vikum fyrir þingið eða í síðasta lagi 19 mars.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Þingsetning.
- Kjör fundarstjóra og fundarritara.
- Staðfesta lögmæti fundarins.
- Kosning kjörbréfanefndar.
- Fara yfir fundargerð síðasta þings.
- Afhending viðurkenninga.
- Ávörp gesta.
- Fráfarandi stjórn gefur skýrslu.
- Reikningar sambandsins lagðir fram (með áliti skoðunarmanna).
- Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga sambandsins.
- Reikningar bornir undir atkvæði.
- Fjárhagsáætlun.
- Lagabreytingar.
- Umræður og afgreiðsla á tillögum sem þinginu hafa borist.
- Kosning stjórnar og varamanna.
- Kosning skoðunarmanna reikninga.
- Val fulltrúa á íþróttaþing.
- Önnur mál.
- Ávarp nýs formanns.
- Þingslit.
Fyrir hönd stjórnar Borðtennissambands Íslands
Örn Þórðarson Formaður BTÍ