Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Ársþing Borðtennissamband Íslands 2022 verður haldið 2. apríl 2022 (ath. breyttan fundartíma)

Borðtennisþing Borðtennissambands Íslands verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal laugardaginn 2. apríl 2022 kl.13:00 kl. 15:00, sbr. 5. gr. laga sambandsins.

Kjörbréf til aðildarfélaga verða send út á næstu dögum.

Frestur til að skila inn breytingatillögum á lögum og reglugerðum er 21 dögum fyrir þingið eða í síðasta lagi 12. mars. Breytingatillögur skulu sendar á [email protected]  Ekki verður tekið við breytingatillögum eftir þann tíma. BTÍ mun senda breytingatillögur út til kynningar tveimur vikum fyrir þingið eða í síðasta lagi 19 mars.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Þingsetning.
  2. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
  3. Staðfesta lögmæti fundarins.
  4. Kosning kjörbréfanefndar.
  5. Fara yfir fundargerð síðasta þings.
  6. Afhending viðurkenninga.
  7. Ávörp gesta.
  8. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu.
  9. Reikningar sambandsins lagðir fram (með áliti skoðunarmanna).
  10. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga sambandsins.
  11. Reikningar bornir undir atkvæði.
  12. Fjárhagsáætlun.
  13. Lagabreytingar.
  14. Umræður og afgreiðsla á tillögum sem þinginu hafa borist.
  15. Kosning stjórnar og varamanna.
  16. Kosning skoðunarmanna reikninga.
  17. Val fulltrúa á íþróttaþing.
  18. Önnur mál.
  19. Ávarp nýs formanns.
  20. Þingslit.

Fyrir hönd stjórnar Borðtennissambands Íslands

Örn Þórðarson Formaður BTÍ

Aðrar fréttir