Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Ársþing BTÍ 2024 verður haldið 4. maí

Borðtennisþing Borðtennissambands Íslands verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, sal C, laugardaginn 4. maí 2024 kl. 15:00 sbr. 5. gr. laga sambandsins.

Kjörbréf til aðildarfélaga verða send út á næstu dögum.

Frestur til að skila inn breytingatillögum á lögum og reglugerðum er 21 dögum fyrir þingið eða í síðasta lagi 13. apríl. Breytingatillögur skulu sendar á [email protected].

Ekki verður tekið við breytingatillögum eftir þann tíma. BTÍ mun senda breytingatillögur út til kynningar tveimur vikum fyrir þingið eða í síðasta lagi 20. apríl.

Til viðbótar við hefðbundna dagskrá verður rætt um fyrirkomulag Íslandsmóts fullorðinna, þá einkum hvort taka eigi upp riðlafyrirkomulag og hvort 2. og 1. flokkur eigi að vera áfram, í samhengi við hvernig mótið er í nágrannalöndum okkar.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  • Þingsetning.
  • Kjör fundarstjóra og fundarritara.
  • Staðfesta lögmæti fundarins.
  • Kosning kjörbréfanefndar.
  • Fara yfir fundargerð síðasta þings.
  • Afhending viðurkenninga.
  • Ávörp gesta.
  • Fráfarandi stjórn gefur skýrslu.
  • Reikningar sambandsins lagðir fram (með áliti skoðunarmanna).
  • Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga sambandsins.
  • Reikningar bornir undir atkvæði.
  • Fjárhagsáætlun.
  • Lagabreytingar.
  • Umræður og afgreiðsla á tillögum sem þinginu hafa borist.
  • Kosning stjórnar og varamanna.
  • Kosning skoðunarmanna reikninga.
  • Val fulltrúa á íþróttaþing.
  • Önnur mál.
  • Ræða formanns.
  • Þingslit.

Fyrir hönd stjórnar Borðtennissambands Íslands
Auður Tinna Aðalbjarnardóttir
formaður BTÍ

Þingfulltrúar á ársþingi 2024

Í meðfylgjandi töflu sjá hvaða félög eru með skráða leikmenn og hver fjöld þingfulltrúa er á hvert félag.

Félag Fjöldi  Þingfulltrúar 
Akur 8 2
BH 79 4
BM 5 2
BR 30 3
Dímon 107 4
Garpur 43 3
HK 44 3
ÍFR 3 2
KR 142 5
Umf. Selfoss 25 2
Ungmf. Samherjar 8 2
Víkingur 72 3
Örninn 4 2
Samtals 570 37

Aðrar fréttir