Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Ársþing BTÍ 2026 verður haldið 10. maí

Borðtennisþing Borðtennissambands Íslands verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, B-sal, sunnudaginn 10. maí 2025 kl. 13:00, sbr. 5. gr. laga sambandsins.

Kjörbréf má finna hér og eru þau send til aðildarfélaga í dag samhliða birtingu þessarar fréttar.

Fjöldi þingfulltrúa er eftirfarandi:

Félag Iðkendur Þingfulltrúar
Akur 12 2
Ármann 1 2
BH 61 4
BM 10 2
BR 30 3
Dímon 94 5
Fjölnir 1 2
Fram 11 2
Garpur 72 4
Hamar 2 2
HK 53 4
ÍA 6 2
ÍFR 15 2
ÍR 2 2
Keflavík 2 2
KR 117 5
Leiknir 7 2
Umf. Austri 1 2
Umf. ÁS 3 2
Umf. Efling 5 2
Umf. Gnúpverja/UMFG 3 2
Umf. Grundarfjarðar 2 2
Umf. Kormákur 1 2
Umf. Laugdæla 5 2
Umf. Selfoss 66 4
Umf. Smári 2 2
Umf. Snæfell 5 2
Umf. Stokkseyrar 8 2
Umf. Vísir 15 2
Umf. Þjótandi 2 2
Umf. Þristur 3 2
UMFB 13 2
UMFN 1 2
UMSB 5 2
UMSE 2 2
Ungmf. Eyfellingur 1 2
Ungmf. Hekla 6 2
Ungmf. Hrunamanna 1 2
Ungmf. Skeiðamanna 2 2
Víkingur 85 5
Þróttur, Vogum 2 2
Örninn 2 2
Vantar upplýsingar 3 2
S 740 104

Á ársþingi BTÍ þann 10. maí nk. eiga 42 félög rétt á að senda samtals 104 fulltrúa, sem hafa atkvæðisrétt. Auk þeirra eiga ýmsir aðrir rétt til setu á þinginu með málfrelsi og tillögurétt, t.d. stjórn og varastjórn BTÍ, sbr. 6. gr. laga BTÍ.

Frestur til að skila inn breytingatillögum á lögum og reglugerðum er 21 dögum fyrir þingið eða í síðasta lagi 19. apríl. Breytingartillögur skulu sendar á [email protected].

Ekki verður tekið við breytingatillögum eftir þann tíma. BTÍ mun senda breytingartillögur út til kynningar tveimur vikum fyrir þingið eða í síðasta lagi 26. apríl nk.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi (birt með fyrirvara um breytingar):

  • Þingsetning.
  • Kjör fundarstjóra og fundarritara.
  • Staðfesta lögmæti fundarins.
  • Kosning kjörbréfanefndar.
  • Fara yfir fundargerð síðasta þings.
  • Afhending viðurkenninga.
  • Ávörp gesta.
  • Fráfarandi stjórn gefur skýrslu.
  • Reikningar sambandsins lagðir fram (með áliti skoðunarmanna).
  • Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga sambandsins.
  • Reikningar bornir undir atkvæði.
  • Fjárhagsáætlun.
  • Lagabreytingar.
  • Umræður og afgreiðsla á tillögum sem þinginu hafa borist.
  • Kosning stjórnar og varamanna.
  • Kosning skoðunarmanna reikninga.
  • Val fulltrúa á íþróttaþing.
  • Önnur mál.
  • Ræða formanns.
  • Þingslit.

Fyrir hönd stjórnar Borðtennissambands Íslands
Auður Tinna Aðalbjarnardóttir,
formaður BTÍ

Aðrar fréttir