Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Ársþing BTÍ var haldið 10. maí

Ársþing BTÍ var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal sunnudaginn 10. maí.

Auður Tinna Aðalbjarnardóttir var endurkjörin formaður til næstu tveggja ára. Jóhann Ingi Benediktsson gaf áfram kost á sér í stjórn til tveggja ára og var endurkjörinn. Sigurjón Ólafsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn og í hans stað var Anne-Andrée Bois kjörin í stjórn til tveggja ára.
Guðrún Gestsdóttir og Már Wolfgang Mixa voru kjörin til tveggja ára í fyrra og sitja því áfram í stjórn til næsta ársþings.

Tillögur til breytinga á lögum BTÍ voru samþykktar, sbr. frétt frá 26.4.

Fundarmenn minntust Árna Siemsen með því að rísa úr sætum.

Auður Tinna Aðalbjarnardóttir og Kristján Aðalbjörn Jónasson (fjarverandi) fengu gullmerki BTÍ og Finnur Hrafn Jónsson, Hlöðver Steini Hlöðversson og Sigurjón Ólafsson fengu silfurmerki BTÍ fyrir framlag sitt til borðtennisíþróttarinnar.

Fundargerð frá þinginu verður birt á vefnum á næstunni.

UPpfært 11.5.

Aðrar fréttir