Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Átta leikmenn æfa með færeyska unglingalandsliðinu 9.-10. mars

Mattia Contu, unglingalandsliðsþjálfari, hefur valið átta leikmenn úr unglingalandsliðshópnum til að taka þátt í æfingabúðum með færeyska unglingalandsliðinu 9.-10. mars. Búðirnar verða haldnar að Laugalandi í Holtum en föstudagskvöldið 8. mars verður æfing í Íþróttahúsi Hagaskóla.

Æfingarnar að Laugalandi um helgina verða kl. 11-13 og aftur kl. 14-16 en þar á milli verður hlé fyrir hádegisverð.

Íslensku leikmennirnir sem taka þátt eru:

Benedikt Jiyao Davíðsson, Víkingi
Benedikt Aron Jóhannsson, Víkingi
Darian Adam Róbertsson Kinghorn, HK
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR
Helena Árnadóttir, KR
Kristján Ágúst Ármann, BH
Lúkas André Ólason, KR
Tómas Hinrik Holloway, KR

Mynd frá Íslandsmótinu 2024 tekin af fésbókarsíðu BTÍ.

Aðrar fréttir