Átta leikmenn úr unglingalandsliðinu keppa í Linz
Átta leikmenn úr unglingalandsliðshópnum leika á 25. Linz AG Youth Championships, sem fram fer í Linz í Austurríki 2.-6. apríl nk.
Auk íslensku leikmannanna leika tveir norskir leikmenn með íslenska liðinu, en það er heimilt á þessu móti. Keppt er í liðakeppni og einliðaleik.
Leikmenn á mótinu:
Undir 19 ára drengir:
Alexander Ivanov, BH
Benedikt Aron Jóhannsson, Víkingi
Undir 17 ára stúlkur:
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR
Helena Árnadóttir, KR
Undir 17 ára drengir:
Kristján Ágúst Ármann, BH
Lasse Bekkebråten (norskur)
Heiðar Leó Sölvason, BH
Viktor Daníel Pulgar, KR
Undir 15 ára sveinar:
Lúkas André Ólason, KR
Jørgen Gravseth (norskur)
Þjálfarar með hópnum á mótinu verða Sindre Åteigen, landsliðsþjálfari, og Tómas Ingi Shelton. Auk þeirra verða Gunnar Skúlason og Gestur Gunnarsson á svæðinu og mun Gestur líka aðstoða við þjálfun.
Á forsíðunni má sjá hópinn sem fór á EM unglinga 2025.


