Benedikt, Helena og Lúkas leika í útslætti um sigur í einliðaleik
Keppni hélt áfram á á 25. Youth championships í Linz í Austurríki þann 4. apríl. Keppni hófst í einliðaleik, þar sem leikið var í riðlum. Auk þess hélt stúlknaliðið áfram keppni í riðlinum í liðakeppni og drengjaliðin fjögur léku í 8 liða úrslitum í liðakeppni.
Eftir leiki dagsins er ljóst að þrjú drengjaliðanna leika í undanúrslitum þann 5. apríl en Ísland 2 í Undir 17 ára drengjaflokki leikur um 5.-8. sæti.
Í einliðaleik var leikið í riðlum og spilað verður upp úr riðlunum með einföldum útslætti þann 5. apríl. Leikmenn sem enda í efri hluta riðilsins leika í „championship“ útslætti um sigur í flokknum en þeir sem ljúka keppni í neðri hluta riðils leika í „challenge“ útslætti, e.k. B-keppni.
Þau Benedikt Aron Jóhannsson, Helena Árnadóttir og Lúkas André Ólason keppa í „championship“ útslætti þann 5. apríl eftir leiki dagsins 4. apríl.
Úrslit dagsins:
Undir 19 ára drengir:
Liðakeppni:
Ísland – TSV Dachau 1865 (Þýskalandi) 3-0
Þeir Alexander og Benedikt unnu alla leikina í 8 liða úrslitum og eru komnir í undanúrslit. Þar mæta þeir Vestegnen BTK frá Danmörku.
Einliðaleikur:
Alexander Ivanov dróst í Q-riðil 1 og tapaði fyrst 0-3 fyrir belgískum dreng og 2-3 fyrir austurrískum leikmanni. Í riðlinum voru þrír leikmenn og Alexander varð því í 3. sæti. Hann keppir við belgískan leikmann í 2. umferð í „challenge“ útslættinum en situr hjá í 1. umferð.
Benedikt Aron Jóhannsson er í Q-riðli 10 og lagði leikmann frá Þýskalandi 3-0 og annan frá Sviss 3-2 en tapaði svo 0-3 fyrir dönskum dreng. Hann lauk keppni í 2. sæti riðilsins og mætir þýskum leikmanni í „championship“ útslættinum.
Undir 17 ára stúlkur:
Liðakeppni:
Ísland – TTK EDEN (Austurríki) 3-1
Þetta er þriðji leikur stúlknanna í riðlinum. Guðbjörg Vala vann báða einliðaleiki sína og Guðbjörg og Helena unnu tvíliðaleikinn.
Einliðaleikur:
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir er í Q-riðli 5 og vann fyrst leikmann frá Wales 3-2 en tapaði svo 2-3 fyrir stúlku frá Slóvakíu og 2-3 fyrir hollenskri stúlku. Hún lauk keppni í 3. sæti og leikur í „challenge“ útslætti. Þar situr hún hjá í 1. umferð og mætir annað hvort þýskri eða austurrískri stúlku í 2. umferð.
Helena Árnadóttir lenti í Q-riðli 6 og tapaði 2-3 fyrir stúlku frá Lúxemborg en fékk svo gefins sigur gegn þýskri stúlku í öðrum leik. Síðan lagði hún stúlku frá Wales 3-1. Hún sigraði í riðlinum með hagstæðasta hlutfall unninna og tapaðra lota en þrjár stúlkur höfðu jafnmörg stig. Helena leikur því í „championship“ útslætti, þar sem hún situr hjá í 1. umferð og mætir hollenskri stúlku í 2. umferð.
Undir 17 ára drengir:
Liðakeppni:
Ísland 1 – Virum / Hvidovre (Danmörku) 3-0
Þeir Kristján og Lasse unnu alla leikina og leika í undanúrslitum þann 5. apríl við NÖTTV frá Austurríki.
Einliðaleikur:
Kristján Ágúst Ármann leikur í Q-riðli 12 og tapaði 0-3 fyrir svissneskum leikmanni. Hann fékk síðan gefins sigur gegn austurrískum leikmanni. Loks tapaði hann 2-3 fyrir dönskum dreng og lauk keppni í 3. sæti í riðlinum. Hann leikur í „challenge“ útslætti við austurrískan leikmann 5. apríl.
Liðakeppni:
Ísland 2 – Tischtennis-Verband Innerschweiz (TTVI) (Austurríki) 0-3
Allir leikirnir töpuðust 0-3. Þeir Heiðar og Viktor leika því um sæti 5.-8. í flokknum við Team Maga frá Þýskalandi.
Einliðaleikur:
Heiðar Leó Sölvason er í Q-riðli 13 og sigraði leikmann frá Lúxemborg 3-0 en tapaði 0-3 fyrir dönskum dreng og 1-3 fyrir svissneskum leikmanni. Hann endaði í 3. sæti í riðlinum og leikur í „challenge“ útslætti við þýskan leikmann.
Viktor Daníel Pulgar leikur í Q-riðli 2 og tapaði 0-3 fyrir leikmanni frá Þýskalandi og 0-3 fyrir leikmanni frá Danmörku. Einungis voru þrír leikmenn í riðlinum og Viktor hafnaði því í 3. sæti. Hann situr hjá í 1. umferð í útsláttarkeppninni og mætir annað hvort leikmanni frá Austurríki eða Sviss í 2. umferð.
Undir 15 ára sveinar:
Liðakeppni:
Ísland – FC Bayern München (Þýskalandi) 3-1
Einliðaleikur:
Lúkas vann báða einliðaleikina sína og þeir Lúkas og Jörgen unnu tvíliðaleikinn. Þeir leika því undanúrslitum þann 5. apríl við CPH Hvidovre frá Danmörku.
Lúkas André Ólason dróst í Q-riðil 20. Hann byrjaði á að vinna svissneskan leikmann 3-0 og vann svo danskan leikmann 3-0 og leikmann frá Lúxemborg 3-1. Hann sigraði því í Q-riðli 20 og leikur í „championship“ útsláttarkeppni við enskan leikmann um sigur í flokkum þann 5. apríl.
Keppni heldur áfram í einliðaleik og liðakeppni 5. apríl.
Öll úrslit á mótinu má sjá hér: www.ttm.co.at
Á forsíðumyndinni, sem Gunnar Skúlason tók, má sjá Lúkas André Ólason og norska meðspilara hans, Jörgen Graveseth.


