BH-A efst í 1. deild karla eftir tvær umferðir
Keppni í 1. deild karla hófst í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi laugardaginn 19. september.
Eftir tvo leiki er BH-A eina ósigraða liðið og hefur 4 stig. KR-B er með 3 stig, HK-A hefur 2 stig og BH-B, KR-A og Íslandsmeistarar Víkings-A hafa 1 stig.
Úrslit úr einstökum viðureignum:
KR-A – KR-B 5-5
BH-B – BH-A 0-6
Víkingur-A – HK-A 1-6
Víkingur-A – BH-B 5-5
BH-A – KR-A 6-0
HK-A – KR-B 4-6
Á næstunni verða úrslit úr öllum viðureignum aðgengileg á vef deildinnar hjá Tournament Software, sjá https://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=E14653FB-3F70-479A-9CCC-6A7301EC0DF7
Á forsíðumyndinni má sjá liðin sem léku til úrslita í deildinni vorið 2026.


