Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

BH-A er enn í forystu í 1. deild karla eftir sex umferðir

Keppni hélt áfram í 1. deild karla sunnudaginn 22. nóvember, þegar 5. og 6. umferð voru leiknar í Íþróttahúsi Hagaskóla í Reykjavík.

Víkingar mættu til leiks með leikmenn sem spila í Svíþjóð, þ.e. annað lið en spilaði fyrstu fjóra leikina. Þeir unnu báða leiki sína og klifra því upp stigatöfluna. Víkingur-A lagði BH-A 6-0 en lið BH-A var taplaust til þessa í deildinni. BH-A heldur þó forystunni í deildinni og er með 10 stig, KR-A hefur 8 stig, KR-B er með 7 stig, HK-A og Víkingur-A hafa 5 stig og BH-B er á botninum með 1 stig.

Úrslit úr einstökum viðureignum:

BH-A – Víkingur-A 0-6
KR-B – BH-B 6-1
KR-A – HK-A 5-5
HK-A – Víkingur-A 1-6
BH-A – BH-B 6-0
KR-B – KR-A 4-6

Úrslit úr einstökum viðureigum verða lesin inn og birt á vef Tournament Software seinna í mánuðinum, sjá https://www.tournamentsoftware.com/sport/team.aspx?id=E14653FB-3F70-479A-9CCC-6A7301EC0DF7&team=11.

Á forsíðunni má sjá lið KR-A á mynd frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.

Aðrar fréttir