Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

BH-D hefur tekið forystu í höfuðborgarsvæðisriðli 4. deildar

Leiknar voru tvær umferðir í höfuðborgarsvæðisriðli 4. deildar sunnudaginn 22. nóvember. Að þessu sinni var leikið í Íþróttahúsi ÍFR við Hátún í Reykjavík.

Þennan dag mættust KR-E og BH-D, sem voru í forystu í riðlinum eftir fjórar umferðir. BH-D sigraði og er því eitt í forystu. Staðan í riðlinum er þá sú að BH-D hefur 11 stig, ÍFR-A og KR-E hafa 9 stig, KR-F er með 5 stig, KR-G hefur 2 stig og ÍFR-B er án stiga.

Úrslit úr einstökum viðureignum:

KR-E – BH-D 3-6
KR-G – ÍFR-A 0-6 (aðeins einn leikmaður KR-G mætti til leiks)
ÍFR-B – KR-F 0-6
KR-F – BH-D 3-6
ÍFR-A – ÍFR-B 6-2
KR-G – KR-E 0-6

Úrslitin úr leikjunum verða fljótlega lesin inn í Tournament Software. Hér má sjá stöðuna í höfuðborgarsvæðisriðli deildarinnar: https://www.tournamentsoftware.com/sport/events.aspx?id=3A3AC4DB-3603-43C6-BD2F-0413F532C2F7&tlt=1

Á forsíðumyndinni má sjá lið KR-E.

Aðrar fréttir