BH, Dímon, Garpur, HK, KR og Vísir unnu titla í flokkakeppninni
Íslandsmót í flokkakeppni unglinga fór fram að Laugalandi í Holtum laugardaginn 10. október. Keppni var auglýst í þremur aldursflokkum drengja og stúlkna en féll niður í flokki meyja 15 ára og yngri.
Eftir reglugerðarbreytingu sl. sumar var var hámarksaldur í elsta flokkunum 19 ára í stað 18 ára áður.
Keppendur komu frá BH, Dímon, Garpi, HK, KR, Selfossi, Stokkseyri, UMFG og Vísi.
HK var sigursælast félaga en HK-ingar unnu bæði flokk pilta 13 ára og yngri og flokk sveina 15 ára og yngri. Auk þess átti HK silfurliðin í þessum flokkum. Þetta er fjórða árið í röð sem HK vinnur yngsta strákaflokkinn.
Lið BH varð Íslandsmeistari í drengjaflokki 19 ára og yngri.
Sameiginlegt lið frá Dímon, Garpi og Vísi sigraði í flokki telpna 13 ára og yngri.
Lið KR varð Íslandsmeistari í flokki stúlkna 19 ára og yngri og er þetta fjórða árið í röð sem þær Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir og Helena Árnadóttir verða Íslandsmeistarar. Flokkakeppnin féll niður árin 2021-2023 en þær unnu líka árið 2020 og hafa því ekki tapað í flokkakeppni síðan árið 2019.
Verðlaunahafar:

Piltar 13 ára og yngri
1. HK-A (Brynjar Gylfi Malmquist/Sindri Karl Heimisson)
2. HK-B (Óðinn Hechmann Emilsson/Þór Hechmann Emilsson)
3.-4. HK-C (Agnar Bergmann Stefánsson/Pétur Freyr Helgason Darai/Viggó Arnarsson)
3.-4. KR (Dalmar Bragi Aronsson/Hilmar Þór Róbertsson)

Telpur 13 ára og yngri
1. Dímon/Garpur/Vísir (Anna Karen Malmquist Bjarnadóttir/Guðbjörg Stella Pálmadóttir/Marsibil Silja Jónsdóttir)
2. Selfoss (Linda Björt Jóhannsdóttir/Saga Katrín Sveinbjörnsdóttir)
3. Garpur (Kolbrún María Pierresdóttir/Ronja Rún Þórarinsdóttir/Salka Sigríður Sigurðardóttir)
4. UMFG (Hafdís Hanna Gestsdóttir/Ingibjörg Halla Gestsdóttir)

Sveinar 15 ára og yngri
1. HK-A (Andri Sigurjón Hrundarson/Jörundur Steinar Hansen)
2 HK-B (Allan Sebastian Ævarsson/Benedikt Darri Malmquist)
3.-4. BH (Benjamín Bjarki Magnússon/Sindri Þór Rúnarsson/Vincent Daniel Guerrero Manaure)
3.-4. Dímon-A (Hrafnar Freyr Leósson/Jökull Pálsson)

Drengir 19 ára og yngri
1. BH (Heiðar Leó Sölvason/Kristján Ágúst Ármann/Sigurður Einar Aðalsteinsson)
2. Selfoss-A (Almar Elí Ólafsson/Anton Óskar Ólafsson)
3. Garpur (Sævar Hörður Sverrisson/Þorgeir Óli Eiríksson)
4. Selfoss-B (Kjartan Júlíusson/Sævar Þór Jóhannesson)

Flokkakeppni stúlkna 19 ára og yngri
1. KR-A (Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir/Helena Árnadóttir)
2. KR-B (Marta Dögg Stefánsdóttir/Þórunn Erla Gunnarsdóttir)
3. Garpur (Guðný Lilja Pálmadóttir/Sóldís Lilja Sveinbjörnsdóttir/Weronika Grzegorczyk)
Úrslit úr öllum leikjum má sjá á vef Tournament Software: https://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=9FE91367-255C-4FA5-ADAF-6317035A2530
Myndir frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.


