BH, KR og Víkingur Íslandsmeistarar í flokkakeppni unglinga
Keppt var um Íslandsmeistaratitlana í flokkakeppni unglinga í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði laugardaginn 7. mars. Um 30 lið voru skráð til leiks en 5 lið frá Garpi og Selfossi afboðuðu sig vegna veikinda. Lið frá Stjörnunni tók þátt í mótinu í fyrsta skipti í mörg ár auk liða frá BH, HK, KR og Víkingi.
Keppt var í þremur aldursflokkum drengja og stúlkna 13 ára og yngri, 14-15 ára og 16-18 ára. Aðeins eitt lið var skráð til leiks í flokki meyja 14-15 ára, frá BH, en skv. reglugerð BTÍ var það lið flutt upp í stúlknaflokk 16-18 ára og enginn Íslandsmeistaratitill veittur í meyjaflokki.
Piltar 13 ára og yngri
1. BH-A (Alexaner Ivanov, Nikulás Dagur Jónsson)
2. KR-A (Logi Þórólfsson, Tómas Hinrik Holloway)
3.-4. BH-C (Gestur Breiðfjörð Sigurðsson, Gunnar Viðar Rúnarsson, Styrmir Haukur Sigurðsson)
3.-4. BH-D (Dagur Fannar Jóhannesson, Heiðar Þór Þrastarson)
Þetta var fjölmennasti flokkurinn og keppt í tveimur riðlum. Síðan var leikið upp úr riðlunum til úrslita með útslætti. Lið BH-A vann þriðja árið í röð og lagði A-lið KR 3-1 í úrslitaleiknum.
Telpur 13 ára og yngri
1. KR-A (Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, Helena Árnadóttir)
2. BH – HK (Elísa Þöll Bjarnadóttir, Þórdís Lilja Jónsdóttir)
3. KR-B (Iðunn Helgadóttir, Patrycja Sóla Níton)
4. KR-C (Gunnhildur Sturludóttir, Hrefna Dís Héðinsdóttir)
KR-A vann alla sína leiki og sigraði sameiginlegt lið BH og HK 3-1 í úrslitaleik. Þetta er fjórða árið, sem keppt er í þessum flokki en fyrsti titill KR í flokknum.
Sveinar 14-15 ára (sjá mynd á forsíðu)
1. Víkingur (Dagur Stefánsson, Jón Arnar Finnbogason)
2. KR-A (Gunnar Þórisson, Ólafur Steinn Ketilbjörnsson)
3. BH (Benóný Vikar Stefánsson, Kristófer Júlían Björnsson)
4. KR-B (Eysteinn Jóhannesson, Guttormur Arnórsson, Kormákur Hólmsteinn Friðriksson)
Keppnin var spennandi í þessum flokki og lauk sex leikjum af tíu með 3-2 sigri. Víkingar unnu alla leiki sína og hlutu 8 stig en KR-A og BH fengu 4 stig. KR-B og KR-C fengu 2 stig.
Drengir 16-18 ára
1. BH – Víkingur (Ingi Darvis Rodriguez, Þorbergur Freyr Pálmarsson)
2. KR-A (Eiríkur Logi Gunnarsson, Ingi Brjánsson)
3. KR-B (Benedikt Vilji Magnússon, Steinar Andrason)
4. Stjarnan (Bjarki Heiðarsson, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson)
Sameiginlegt lið BH og Víkings, með Íslandsmeistarann Inga Darvis innanborðs, sigraði A-lið KR 3-2, þar sem Ingi vann báða sína leiki og liðið vann tvíliðaleikinn 3-1.
Stúlkur 16-18 ára
1. KR (Berglind Anna Magnúsdóttir, Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, Þóra Þórisdóttir)
2. Víkingur (Agnes Brynjarsdóttir, Lóa Floriansdóttir Zink)
3. BH – KR (Sandra Dís Guðmundsdóttir, Þuríður Þöll Bjarnadóttir)
KR sigraði Víking 3-2 í úrslitaleiknum, þar sem 11-9 sigur í oddalotunni í tvíliðaleik hjá Kristínu og Þóru réði úrslitum. Söndru Dís vantar á myndina af verðlaunahöfunum.
Myndir frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.