Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

BH og KR leika í Europe Trophy um helgina

Helgina 9.-10. desember leika BH og KR í Europe Trophy keppninni í Eskilstuna í Svíþjóð. Liðin leika í B-riðli en riðlar eru 8 talsins og er liðum raðað í riðla út frá svæðaskiptingu. Sigurliðið úr riðlinum fer í úrslitakeppni.

Hin liðin í riðlinum eru Eskilstuna frá Svíþjóð, Pöytätennis Espoo frá Finnlandi og Rytas frá Litháen.

Fyrir BH keppa Birgir Ívarsson, Ingimar Ingimarsson, Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, Magnús Gauti Úlfarsson, Pétur Marteinn Urbancic Tómasson og Þorbergur Freyr Pálmarsson til Svíþjóðar.

Leikmenn KR verða Ellert Kristján Georgsson, Gestur Gunnarsson, Norbert Bedo og Pétur Gunnarsson.

Hér má sjá úrslitin: https://www.ettu.org/en/events/europe-trophy-men–amp–women/results/

Aðrar fréttir