Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

BH OPEN 2023 helgina 25.-26. febrúar 2023

BH OPEN verður haldið í fyrsta sinn þann 25.-26. febrúar 2023 í Íþróttahúsinu við Strandgötu 53 í Hafnarfirði. Auglýsingu fyrir mótið á pdf sniði er að finna hér

Boðið verður upp á keppni í eftirfarandi flokkum:

Laugardagur 1. Blokk

Hefst kl 09:00

Laugardagur 2. Blokk

Hefst kl 13:00

Flokkur Flokkur
Stelpur u11 Stelpur u13
Strákar u11 Strákar u13
Stelpur/Strákar u15 A Stelpur/Strákar u19 A
Stelpur/Strákar u15 B (u 1250 stig) Stelpur/Strákar u19 B (u 1400 stig)
Strákar U23 Meistaraflokkur karla Elite
Stelpur U23 Meistaraflokkur kvenna Elite
Opinn flokkur B (u 2000 stig) Karlar/Konur 40 ára og eldri
Sunnudagur 3. Blokk

Hefst kl 09:00

Sunnudagur 4. Blokk

Hefst kl 13:00

Flokkur Flokkur
Stelpur u12 Stelpur u14
Strákar u12 Stelpur u14 B (u 1200 stig)
Stelpur/Strákar u17 A Strákar u14
Stelpur/Strákar u17 B Strákar u14 B (u 1200 stig)
Opinn flokkur A (u 2500 stig) Stelpur/Strákar u21 A
Opinn flokkur C (u 1500 stig) Stelpur/Strákar u21 B (u1500 stig)
Tvíliðaleikur „Hæsti/Lægsti“page1image18555216page1image18561040

Fyrirkomulag:

Keppa má í fjórum flokkum alls, en þó einungis einum flokki í hverri „blokk“. Ef of fáir skrá sig í einn flokk mun mótstjórn sameina flokka til þess að leikmenn fái fleiri leiki.

Flokkar í 1.&3. blokk hefjast á milli 09:00-11:00. Flokkar í 2.&4. blokk hefjast á milli 13:00-15:00.

Keppt verður í 4-5 manna riðlum í öllum flokkum þar sem efstu 2 fara áfram í beinan útslátt. Leiknar verða 3-5 lotur í öllum flokkum.

Í flokkinum Tvíliðaleikur „Hæsti/Lægsti“ parast keppendur saman eftir styrkleikalistanum.
Fyrst parast þeir keppendur sem eru efst og neðst á styrkleikalistanum saman. Næst parast þeir sem eru næst efst og næst neðst og svo koll af kolli.

Skráning

Skráning fer fram í gegnum skráningarform BH. Skráningarformið má finna hér: Skráning á BH OPEN

Ef skráningarformið gengur ekki má senda skráningu með tölvupósti á netfang borðtennisdeildar BH, [email protected]. Í skráningu skal taka fram fullt nafn keppanda, kennitölu, félag og skal taka skýrt fram í hvaða flokkum keppandinn vill keppa í.

Skráningafrestur rennur út fimmtudaginn 23. febrúar kl 19:00.

 

Röðun

Raðað verður samkvæmt keppnisreglum BTÍ þar sem að lágmarki 4 leikmenn fá röðun í hverju flokki. Raðað verður eftir styrkleikalista BTÍ 1.febrúar 2023.

Þáttökugjöld

  • Meistaraflokkur Elite kr. 3.000,-
  • Tvíliðaleikur „Hæsti/Lægsti“ kr. 1.000,-
  • Aðrir flokkar kr. 2.000,-

Gjaldið greiðist á mótsstað eða inn á bankareikning Borðtennisdeildar BH sem er: Kt: 620709-0180 & Rknr 0544-26-16207
Setjið í skýringu við greiðsluna fyrir hvaða leikmann greitt er. Sendið afrit á [email protected].

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir efstu fjögur sætin í hverjum flokki.

Í Meistaraflokki Elite fær sigurvegari kr 30.000,-.

Í Tvíliðaleik „Hæsti/Lægsti“ fær sigur parið kr 15.000,-.

Verðlaunafé í öðrum fullorðinsflokkum veltur á skráningu og verður auglýst þegar nær dregur.

Búnaður

Borð: Butterfly EUROPA keppnisborð Kúlur: Stiga Perform 3* 40+

Mótstjórn og Yfirdómari

Mótstjórn skipa Ingimar Ingimarsson, Jóhannes Bjarki Urbancic og Tómas Ingi Shelton. Allar fyrirspurnir til mótstjórnar skulu berast til [email protected].

Yfirdómari mótsins verður Pétur Marteinn Urbancic Tómasson.

 

Aðrar fréttir