Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

BH OPEN 2024. Helgina 20.-21. janúar nk.

BH OPEN 2024 verður haldið í annað sinn helgina 20.-21. janúar nk. í Íþróttahúsinu við Strandgötu 53 í Hafnarfirði.

Dagskrá mótsins:

Laugardagur 1. Blokk

Hefst kl 09:00 – 11:00

Laugardagur 2. Blokk

Hefst kl 13:00 – 15:00

Flokkur Flokkur
Stelpur u11 Stelpur u13
Strákar u11 Strákar u13
Stelpur/Strákar u15 A Stelpur/Strákar u19 A
Stelpur/Strákar u15 B (<1250 stig) Stelpur/Strákar u19 B (<1400 stig)
Strákar U23 Meistaraflokkur karla Elite
Stelpur U23 Meistaraflokkur kvenna Elite
Opinn flokkur B (<2000 stig) Karlar/Konur 40 ára og eldri
Sunnudagur 3. Blokk

Hefst kl 09:00 – 11:00

Sunnudagur 4. Blokk

Hefst kl 13:00 – 15:00

Flokkur Flokkur
Stelpur u12 Stelpur u14
Strákar u12 Stelpur u14 B (<1200 stig)
Stelpur/Strákar u17 A Strákar u14
Stelpur/Strákar u17 B (<1350 stig) Strákar u14 B (<1200 stig)
Opinn flokkur A (<2500 stig) Stelpur/Strákar u21 A
Opinn flokkur C (<1500 stig) Stelpur/Strákar u21 B (<1500 stig)
Karlar/Konur 50 ára og eldri Tvíliðaleikur „Hæsti/Lægsti“

 

Fyrirkomulag:

Keppa má í 4 flokkum alls, en þó einungis 1 flokki í hverri „blokk“. Ef of fáir skrá sig í einn flokk mun mótstjórn sameina flokka til þess að fá fleiri leiki.

Flokkar í 1.&3. blokk hefjast á milli 09:00-11:00.

Flokkar í 2.&4. blokk hefjast á milli 13:00-15:00.

Keppt verður í 3-4 manna riðlum í öllum flokkum þar sem efstu 2 fara áfram í beinan útslátt. Leiknar verða 3-5 lotur í öllum flokkum.

Í flokkinum Tvíliðaleikur „Hæsti/Lægsti“ parast keppendur saman eftir styrkleikalistanum.

Fyrst parast þeir keppendur sem eru efst og neðst á styrkleikalistanum saman.

Næst parast þeir sem eru næst efst og næst neðst og svo koll af kolli.

Skráning

Skráning fer fram í gegnum skráningarform BH. Skráningarformið má finna hér:

https://docs.google.com/forms/d/1GEjVIC6wnk42uOnkIESNAIIpHLDy48Qdv378Z7uHSoM/edit

Ef skráningarformið gengur ekki má senda skráningu með tölvupósti á netfang borðtennisdeildar BH, [email protected]. Í skráningu skal taka fram fullt nafn keppanda, kennitölu, félag og skal taka skýrt fram í hvaða flokkum keppandinn vill keppa í.

Skráningafrestur rennur út þriðjudaginn 16. janúar kl 19:00.

Röðun

Raðað verður samkvæmt keppnisreglum BTÍ þar sem að lágmarki 4 leikmenn fá röðun í hverju flokki.

Í Opnum Flokki A og Meistaraflokki karla/kvenna Elite fara efstu 4 leikmenn (skv styrkleikalistanum) beint áfram í útsláttarkeppnina.

Raðað verður eftir styrkleikalista BTÍ 1.janúar 2024.

 

Þáttökugjöld

  • Meistaraflokkur Elite kr 3000,-
  • Tvíliðaleikur „Hæsti/Lægsti“ kr 1500,-
  • Aðrir flokkar kr 2000,-

Leikmenn sem skrá sig í 3 flokka fá þann 4 frítt!

Gjaldið greiðist á mótsstað eða inn á bankareikning Borðtennisdeildar BH:

Kt: 620709-0180 & Rknr 0544-26-16207

Setjið í skýringu við greiðsluna fyrir hvaða leikmann greitt er. Sendið afrit á [email protected].

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir efstu fjögur sætin í hverjum flokki.

Í Meistaraflokki Elite fær sigurvegari kr 30.000,-.

Í Tvíliðaleik „Hæsti/Lægsti“ fær sigur parið kr 15.000,-.

Í Opnum Flokki A, B og C fær sigurvegarinn kr 10.000,-.

Búnaður

Borð:         Butterfly EUROPA keppnisborð

Kúlur:         Stiga Perform 3* 40+

Mótstjórn og Yfirdómari

Mótstjórn skipa Ingimar Ingimarsson, Jóhannes Bjarki Urbancic og Tómas Ingi Shelton. Allar fyrirspurnir til mótstjórnar skulu berast til [email protected].

Yfirdómari mótsins verður Pétur Marteinn Urbancic Tómasson.

Aðrar fréttir