Bikarkeppni félaga 14. febrúar 2026
Bikarkeppni félaga í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 14. febrúar 2026 kl. 12:00.
Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar Víkings. Leikið verður samkvæmt reglugerð BTÍ um keppnina.
Fyrirkomulag keppni:
- Í lið þarf að lágmarki 2 karla og 1 konu.
- Þar sem um bikarkeppni félaga er að ræða skulu allir leikmennirnir vera í sama félagi.
- Hver leikmaður má aðeins leika í einu liði.
- Leikið er með úrsláttarfyrirkomulagi.
- Það lið sigrar sem fyrr hlýtur 4 vinninga og lýkur þá leik.
Leiknir eru 7 leikir í þessari röð:
1. Einliðaleikur karla A – X
2. Einliðaleikur karla B-Y
3. Einliðaleikur kvenna
4. Tvíliðaleikur karla
5. Tvenndarkeppni
6. Einliðaleikur karla A-Y
7. Einliðaleikur karla B-X
Þar sem um bikarkeppni er að ræða eru lið dregin úr einum potti fyrir hverja umferð. Tapi lið leiknum er það úr leik. Leikið verður með Stiga 3ja stjörnu kúlum. Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin og bikarmeistararnir fá farandbikar til varðveislu í eitt ár.
Þátttökugjaldið í mótið er kr. 6.000 á lið.
Yfirdómari: Pétur Ó. Stephensen.
Skráningar: Pétur s-8940040 / [email protected] /sms skeyti
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 12. febrúar kl. 16:00.
Mynd: Bikarmeistarar KR árið 2025


