Bikarkeppni félaga 27. apríl
Bikarkeppni félaga í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu sunnudaginn 27. apríl 2025 kl. 12:00.
Leikið verður samkvæmt reglugerð BTÍ um keppnina. er í umsjón Borðtennisdeildar Víkings.
Fyrirkomulag keppni er eftirfarandi:
Í lið þarf að lágmarki 2 karla og 1 konu. Þar sem um bikarkeppni félaga er að ræða skulu allir leikmennirnir vera í sama félagi. Hver leikmaður má aðeins leika í einu liði. Leikið er með úrsláttarfyrirkomulagi. Það lið sigrar sem fyrr hlýtur 4 vinninga og lýkur þá leik.
Leiknir eru 7 leikir í þessari röð:
Einliðaleikur karla A – X
Einliðaleikur karla B-Y
Einliðaleikur kvenna
Tvíliðaleikur karla
Tvenndarkeppni
Einliðaleikur karla A-Y
Einliðaleikur karla B-X
Þar sem um bikarkeppni er að ræða eru lið dregin úr einum potti fyrir hverja umferð. Tapi lið leiknum er það úr leik. Leikið verður með Stiga 3ja stjörnu kúlum. Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin og bikarmeistararnir fá farandbikar til varðveislu í eitt ár.
Þátttökugjaldið í mótið er kr. 5.000 á lið.
Yfirdómari: Árni Siemsen.
Mótsstjóri: Pétur Ó. Stephensejn
Skráningar: Pétur s-8940040 / [email protected] / sms skeyti
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 24. apríl kl. 16:00.
Fréttin hefur verið uppfærð með réttri dagsetningu
Myndin er af bikarmeisturum BH 2024