Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Bikarkeppni félaga fer fram 17. apríl 2016

Bikarkeppni félaga í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu sunnudaginn 17. apríl 2016 kl. 13:00.  Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar Víkings. Leikið verður samkvæmt reglugerð BTÍ um keppnina.

Fyrirkomulag keppni er eftirfarandi:

Í lið þarf að lágmarki 2 karla og 1 konu. Þar sem um bikarkeppni félaga er að ræða skulu allir leikmennirnir vera í sama félagi.  Hver leikmaður má aðeins leika í einu liði.  Leikið er með úrsláttarfyrirkomulagi.  Það lið sigrar sem fyrr hlýtur 4 vinninga og lýkur þá leik.

Leiknir eru 7 leikir í þessari röð:

  1. Einliðaleikur karla A – X
  2. Einliðaleikur karla B-Y
  3. Einliðaleikur kvenna
  4. Tvíliðaleikur karla
  5. Tvenndarkeppni
  6. Einliðaleikur karla A-Y
  7. Einliðaleikur karla B-X

Þar sem um bikarkeppni er að ræða eru lið dregin úr einum potti fyrir hverja umferð.  Tapi lið leiknum er það úr leik.

Leikið verður með Stiga 3ja stjörnu kúlum.  Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin og bikarmeistararnir fá farandbikar til varðveislu í eitt ár.

Þátttökugjaldið í mótið er kr. 3.000 á lið.

Dregið verður í mótið fimmtudaginn 14. apríl kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu.

Skráningar: Pétur s-8940040/[email protected]

Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 14. apríl kl. 17:00.

 

Með Borðtenniskveðju

F.h. Borðtennisdeildar Víkings

Pétur Ó. Stephensen

Bréf um mótið: Bikarkeppni félaga 2016

 

ÁMU – frestur til skráningar framlengdur frá upphaflegri birtingu til fimmtudags 14. apríl kl. 17.

Aðrar fréttir