Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Bikarkeppni félaga verður haldin 24. febrúar 2018

Bikarkeppni félaga í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 24. febrúar 2018 kl. 13:00.

Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar Víkings.

Leikið verður samkvæmt reglugerð BTÍ um keppnina.

Fyrirkomulag keppni er eftirfarandi:

Í lið þarf að lágmarki 2 karla og 1 konu. Þar sem um bikarkeppni félaga er að ræða skulu allir leikmennirnir vera í sama félagi.  Hver leikmaður má aðeins leika í einu liði.  Leikið er með úrsláttarfyrirkomulagi.  Það lið sigrar sem fyrr hlýtur 4 vinninga og lýkur þá leik.

Leiknir eru 7 leikir í þessari röð:

  1. Einliðaleikur karla A – X
  2. Einliðaleikur karla B-Y
  3. Einliðaleikur kvenna
  4. Tvíliðaleikur karla
  5. Tvenndarkeppni
  6. Einliðaleikur karla A-Y
  7. Einliðaleikur karla B-XÞar sem um bikarkeppni er að ræða eru lið dregin úr einum potti fyrir hverja umferð.  Tapi lið leiknum er það úr leik.  Leikið verður með Stiga 3ja stjörnu kúlum.  Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin og bikarmeistararnir fá farandbikar til varðveislu í eitt ár.Þátttökugjaldið í mótið er kr. 5.000 á lið.  Yfirdómari: Árni Siemsen.Dregið verður í mótið fimmtudaginn 22. febrúar kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu.Skráningar: Pétur s-8940040/[email protected]Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 22. febrúar kl. 16:00.

Bréf um mótið: Bikarkeppni félaga 2018

 

ÁMU (skv. pósti frá Víkingi)

Aðrar fréttir