Bikarkeppni félaga verður haldin 6. apríl
Bikarkeppni félaga í borðtennis fer fram í KR-heimilinu við Frostaskjól laugardaginn 6. apríl 2013 kl. 10.00. Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar KR.
Til er reglugerð um keppnina, sem var haldin nokkrum sinnum á níunda og tíunda áratug síðustu aldar og verður leikið samkvæmt reglugerðinni. Keppnin verður endurvakin nú til reynslu.
Í lið þarf að lágmarki 2 karla og 1 konu. Þar sem um bikarkeppni félaga er að ræða skulu allir leikmennirnir vera í sama félagi. Hver leikmaður má aðeins leika í einu liði.
Nánari upplýsingar: Bikarkeppni félaga 2013
ÁMU