Bjarni Malmquist Jónsson er íþróttaeldhugi ársins 2025
Bjarni Malmquist Jónsson, Ungmennafélaginu Vísi í Suðursveit, var valinn íþróttaeldhugi ársins 2025. Vali hans var lýst um leið og kjöri íþróttamanns ársins 2025, þann 3. janúar sl. ÍSÍ, í samvinnu við Lottó, stendur fyrir kjöri á íþróttaeldhuga ársins.
Bjarni hefur m.a. sett á fót borðtennisdeild við Vísi, og tekur liðið þátt í deildakeppni BTÍ í fyrsta skipti á þessu keppnistímabili.
Hér má sjá rökstuðning fyrir vali Bjarna, á vef ÍSÍ: https://www.isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Bjarni%20Malmquist%20J%c3%b3nsson.pdf
Forsíðumynd af Bjarna með öðrum liðsmönnum Vísis í 4. deild karla.


