Björgvin Ingi og Anna Karen sigruðu á Íslandsmóti fatlaðra
Björgvin Ingi Ólafsson og Anna Karen Malmquist sigruðu í opnum flokki á Íslandsmóti fatlaðra, sem fram fór í Íþróttahúsi ÍFR laugardaginn 7. mars. Keppendur á mótinu voru 28 frá fjórum félögum, langflestir frá ÍFR.
Björgvin sigraði auk þess í flokki 6-10 og í tvíliðaleik karla og varð í 2. sæti í tvenndarleik.
Anna Karen, sem er 9 ára, sýndi mikla baráttu þegar hún lagði stigahæsta leikmanninn í opnum flokki kvenna, Jónu Kristínu Erlendsdóttur í oddalotu eftir að hafa verið undir 0-2. Jóna Kristín sigraði í tvíliðaleik kvenna og í tvenndarleik.
Verðlaunahafar á Íslandsmóti fatlaðra
Opinn flokkur karla
1. Björgvin Ingi Ólafsson, HK
2. Hákon Atli Bjarkason, ÍFR
3.-4. Agnar Ingi Traustason, ÍFR
3.-4. Óskar Kemp, ÍFR
Opinn flokkur kvenna
1. Anna Karen Malmquist, Umf. Vísi
2. Jóna Kristín Erlendsdóttir, ÍFR
3.-4. Agnes Lovísa Jóhannsdóttir, ÍFR
3.-4. Valgerður Jónsdóttir, ÍFR
Flokkur 1-5
1. Hákon Atli Bjarkason, ÍFR
2. Agnar Ingi Traustason, ÍFR
3.-4. Jóna Kristín Erlendsdóttir, ÍFR
3.-4. Nóni Sær Ásgeirsson, ÍFR
Flokkur 6-10
1. Björgvin Ingi Ólafsson, HK
2. Atli Þór Þorvaldsson, ÍFR
3.-4. Anna Karen Malmquist, Umf. Vísi
3.-4. Jón Grétar Hafsteinsson, ÍFR
Flokkur 11 karlar
1. Óskar Kemp, ÍFR
2. Lárus Thor Valdimarsson, ÍFR
3. Baldur Jóhannesson, ÍFR
4. Stefán Thorarensen, Akri
Flokkur 11 konur
1. Soffía Rúna Jensdóttir, ÍFR
2. Inga Hanna Jóhannsdóttir, ÍFR
3. Hildigunnur Jónína Sigurðardóttir, ÍFR
4. Elín Helga Steingrímsdóttir, ÍFR
Tvíliðaleikur karla
1. Björgvin Arnar Arnarsson/Björgvin Ingi Ólafsson, ÍFR/HK
2. Hákon Atli Bjarkason/Tómas Björnsson, ÍFR
3.-4. Baldur Jóhannesson/Óskar Kemp, ÍFR
3.-4. Lárus Thor Valdimarsson/Stefán Thorarensen ÍFR/Akri
Tvíliðaleikur kvenna
1. Jóna Kristín Erlendsdóttir/Valgerður Jónsdóttir, ÍFR
2. Agnes Lovísa Jóhannsdóttir/Anna Karen Malmquist, ÍFR/Umf. Vísi
3.-4. Halldóra Skowronski/Lilja Björt Baldvinsdóttir, ÍFR
3.-4. Inga Hanna Jóhannsdóttir/Soffía Rúna Jensdóttir, ÍFR
Tvenndarleikur
1. Hákon Atli Bjarkason/Jóna Kristín Erlendsdóttir, ÍFR
2. Björgvin Ingi Ólafsson/Anna Karen Malmquist, HK/Umf. Vísi
3.-4. Björgvin Arnar Arnarsson/Agnes Lovísa Jóhannsdóttir, ÍFR
3.-4. Nóni Sær Ásgeirsson/Valgerður Jónsdóttir, ÍFR
Öll úrslit á mótinu má sjá hér: https://www.tournamentsoftware.com/tournament/27d4b4a8-c05a-4a2b-9dbb-168632e69a22


