Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Borðtennis á Unglingalandssmóti á Selfossi

Borðtennis verður nú í fyrsta skipti í boði á unglingalandsmóti um verslunarmannahelgina. Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus fjölskylduhátíð þar sem börn og ungmenni á aldrinum 11 – 18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum en samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.   

Borðtenniskeppni verður haldin á unglingalandsmótinu laugardaginn 31. júlí klukkan 9-16  þar sem keppt er í stráka- og stúlkuflokkum. 

Einnig verður í boði „Borðtennis fyrir alla“ frá 16-18 sama dag þar sem áhugamenn geta prófað borðtennis og tekist á við skemmtilegar borðtennisþrautir. 

Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst þar sem fjöldatakmörkun er við skráningu í borðtenniskeppnina.   Frekari upplýsingar um mótið og skráningu er á vef UMFÍ  https://www.ulm.is/

Aðrar fréttir