Borðtennisdómarar óskast á Íslandsmótið
Borðtennisdeildir BH og KR óska eftir dómurum á Íslandsmótið í borðtennis sem fer fram 4.-6. mars í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Öll aðstoð er vel þegin hvort sem um ræðir heila daga eða hluta úr degi/dögum.
Allir dómarar með dómararéttindi fá greiddar 500 krónur fyrir hvern dæmdan leik.
Það er ágætt, en ekki nauðsynlegt, að dómarar geri boð á undan sér á netfangið [email protected].
Dagskrá mótsins og allar nánari upplýsingar er að finna hér: https://bordtennis.is/islandsmotid-i-bordtennis-2022/
Endilega hafið samband ef spurningar vakna, við Jóhannes Bjarka, Borðtennissambandi Íslands og Borðtennisdeild BH