Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Borðtennisfjör fyrir stelpur 7. september

Aldís Rún Lárusdóttir og Guðrún G Björnsdóttir standa fyrir borðtennisviðburði fyrir stelpur laugardaginn 7. september í Íþróttahúsi Hagaskóla og stendur yfir kl. 10-13.

Þessi viðburður er þáttur í átaki BTÍ við að fjölga stelpum í íþróttinni og er opinn fyrir allar stelpur sem vilja prófa að spila borðtennis, hvort sem þær eru þegar að æfa borðtennis eða vilja prófa íþróttina.

Boðið verður upp á borðtennis, leiki og ísveislu.

Skráning er á netfangið [email protected] og er beðið um nafn leikmanns, fæðingarár og símanúmer forráðamanns.

Aðrar fréttir