Borðtennismaður og kona ársins 2018
Magnús Gauti Úlfarsson BH og Stella Karen Kristjánsdóttir Víkingi hafa með yfirburðum verið kosin borðtennismaður og borðtenniskona ársins 2018. Voru þau kjörin í kosningu sem í fyrsta sinn var rafræn þar sem allir virkir leikmenn eldri en 16 ára á styrkleikalista BTÍ, stjórn og varastjórn BTÍ og landsliðsþjálfarar hafa atkvæðisrétt. Fór kosningaþátttakan fram úr öllum væntingum.
Magnús Gauti Úlfarsson BH:
Magnús Gauti varð Íslandsmeistari fullorðinna 2018 í karlaflokki 17 ára gamall en áður varð hann margfaldur Íslandsmeistari í yngri flokkum. Á árinu 2018 náði hann í 16 manna úrslit á Norður Evrópumóti fullorðinna og varð hann í áttunda sæti í flokki 16-18 ára á Norður Evrópumótinu. Þrátt fyrir ungan aldur er hann burðarás í íslenska karlalandsliðinu og lék á árinu m.a. á Evrópumóti unglinga í Rúmeníu og Evrópumóti fullorðinna á Spáni. Magnús er góð fyrirmynd og frábær liðsfélagi.
Stella Karen Kristjánsdóttir:
Stella Karen varð á árinu 2018 Íslandsmeistari fullorðinna í kvennaflokki aðeins 16 ára gömul og náði þeim markverða árangri að verða bæði Íslandsmeistari í 1. flokki og meistaraflokki á sama ári. Áður hafði hún orðið margfaldur Íslandsmeistari í yngri flokkum. Hefur hún frá því að hún varð Íslandsmeistari haldið áfram að taka stórstígum framförum og tekið þátt í sínum fyrstu landsliðsverkefnum í fullorðinsflokki. Stella Karen er fylgin sér, harðdugleg og glæsileg fyrirmynd.
Óskar stjórn BTÍ þeim Magnúsi Gauta Úlfarssyni og Stellu Karen Kristjánsdóttur til hamingju með kosninguna.