Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

Borðtennismaður og kona ársins


Guðmundur Stephensen Víkingi/Enjoy deploy Zoetermeer og Lilja Rós Jóhannesdóttir Víkingi hafa verið kosin borðtennismaður og borðtenniskona ársins 2012.

 

Guðmundur Stephensen:  Guðmundur varð á síðasta ári Íslandsmeistari í 19 sinn.  Einnig varð hann Íslandsmeistari í tvíliðaleik karla með Magnúsi K Magnússyni og í tvenndarleik með Evu Jósteinsdóttur.   Eins og árið áður lék hann einnig í hollensku úrvalsdeildinni með liði sínu Zoetermeer  en Guðmundur stóð sig frábærlega með liðinu.  Lék liðið  til úrslita um Hollandsmeistaratitilinn en varð að láta sér nægja 2.sætið.  Liðið komst í 16 liða úrslit Evrópukeppni félagsliða en liðið hafði áður unnið alla leiki sína í tveimur undanriðlum.    Sem þjálfari leiddi hann A lið Víkinga til sigurs í 1. deild karla.

 

Lilja Rós Jóhannesdóttir:   Lilja varð á síðasta ári Íslandsmeistari kvenna og einnig Íslandsmeistari í tvíliðaleik með Evu Jósteinsdóttur.  Lilja Rós sigraði í einliðaleik í 10. skiptið og jafnaði þar með árangur Ragnhildar Sigurðardóttur, sem varð Íslandsmeistari 10 sinnum á árunum 1978-1990.   Einnig varð Lilja Íslandsmeistari í deildarkeppninni með liði sínu Víkingi.

 

Stjórn BTÍ óskar þeim Guðmundi og Lilju til hamingju með kosninguna.


Aðrar fréttir