Borðtennismaðurinn Magnús Kristinn Magnússon var valinn íþróttamaður Víkings
Magnús Kristinn Magnússon borðtennismaður var útnefndur Íþróttamaður Víkings 2017.
Borðtennismenn hafa margir gert gott mót með félagsliðum sínum á árinu 2017. Magnús Kristinn hefur um langt árabil verið einn besti borðtennismaður landsins og góð fyrirmynd fyrir aðra í íþróttinni. Á árinu varð hann Íslandsmeistari í einliðaleik karla og bikarmeistari með Víkingsliðinu. Þá sigraði Magnús fjölmörg stigamót á vegum Borðtennissambandsins á árinu.
Aðrir sem voru tilnefndir eru:
- Halldór Smári Sigurðsson, knattspyrna
- Birgir Már Birgisson, handknattleikur
- Egill Sigurðsson, tennis
- Jón Gunnar Guðmundsson, skíði