Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Bráðabirgða styrkleikalisti fyrir 1. mars birtur á vefnum

Bráðabirgða styrkleikalisti fyrir 1. mars 2023 (kallaður eftir viku 10) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Við þessa uppfærslu hafa BH Open 25.-26. febrúar og leikir í deildakeppninni í febrúar verið lesin inn í styrkleikalistann.
Á listann vantar Íslandsmót öldunga, sem fram fór þann 18. febrúar, þar sem mótshaldari, Borðtennisdeild Víkings, hefur hvorki lesið leiki mótsins inn í mótaforrit Tournament Software né skilað mótsgögnum til starfsmanns BTÍ.

Stjórn BTÍ ákvað að nota styrkleikalistann 1. mars til að raða leikmönnum á Íslandsmótið 4.-5. mars.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Forsíðumynd frá BH Open um síðustu helgi.

Aðrar fréttir