Breyting á Reglugerð um flokkakeppni BTÍ. Frestun leikja
Á stjórnarfundi BTÍ þann 8. nóvember sl. var gerð breyting á 13. gr. reglugerðar um flokkakeppni BTÍ. Er breytingin til komin vegna frestana á leikjum í 1. deild karla og kvenna og 2. deild karla, sem allt of mikið hefur verið af nú á þessu keppnistímabili. Frestun á leik er neyðarúrræði sem aðeins á við í undantekningartilvikum. Að veita slaka hvað þetta varðar hefur einfaldlega alls ekki reynst vel og er mál að linni. Unnið er að uppfærslu reglugerða BTÍ og verða þær birtar á vef BTÍ þegar þeirri vinnu er lokið.