Breyting á reglugerð um flokkakeppni og Íslandsmót
Á stjórnarfundi BTÍ fimmtudaginn 27. október voru einróma samþykktar þrjár breytingar á reglugerðum BTÍ, annars vegar reglugerð um flokkakeppni og hins vegar reglugerð um Íslandsmót.
1. Reglugerð um flokkakeppni.
Bætt var inn flokknum 13 ára og yngri og felldur út flokkur 19-21 árs.
2. Reglugerð um Íslandsmót.
Felldur var út flokkur 19-21 árs.
Þá var það gert skýrt að mótanefnd hefði heimild til að ákveða á hverja ári í 1. deild karla og kvenna og 2. deild karla og kvenna hvort keppt skuli í deildarkeppni yfir veturinn eða um eina helgi í upphafi árs. Áður náði heimildin aðeins til 1. deildar karla. Þrátt fyrir það hefur hefð skapast fyrir fyrrgreindu fyrirkomulagi undanfarin ár í 2. deild karla og 1. deild kvenna.
Að auki voru innsláttar og stafsetningarvillur lagaðar.
Báðar reglugerðirnar hafa verið uppfærðar á vef BTÍ.