Breytingar á leikjum í deildinni 30.-31. október
Nokkrar breytingar verða gerðar á leikjum í deildakeppninni helgina 30.-31. október.
- Umferðum í suðurriðli 3. deildar er frestað vegna COVID-19 smita. Spilað verður 14. nóvember.
- Leikjum Akurs-A við B- og C-lið Víkings og B- og C-lið HK er frestað vegna sóttkvíar leikmanna Akurs. Nýjar dagsetningar fyrir þá leiki eru 26. og 27. nóvember.
- Innbyrðis viðureign Víkings-B og Víkings-C í 2. deild verður leikin 2. eða 4. nóvember í TBR.
Forsíðumyndin var tekin á leik í suðurriðli 3. deildar 17. október sl.