Breytingar á reglugerðum
Stjórn BTÍ hefur samþykkt fimm breytingar á reglugerð um flokkakepnni. Breytingarnar eru eftirfarandi:
Heimild veitt fyrir því að leika þrefalda umferð í deildum þegar aðeins fjögur lið eða færri hafa skráð sig til leiks og verður því leikin þreföld umferð í Keldudeild kvenna í ár, í stað tvöfaldrar umferðar.
Samþykkt fyrri stjórnar um að leika einn undanúrslitaleik og einn úrslitaleik í úrslitakeppni liða er færð inn í reglugerðina.
Umspilsleikur um sæti í efstu deild verður haldinn milli næstefsta sætis 2. deildar og næstneðsta sætis Keldudeildarinnar. Fyrri stjórn hafði fellt leikinn niður í eitt ár.
Úrslitakeppni 2. deildar eru settar reglur.
Uppfærðar útgáfur reglugerðarinnar er að finna undir flipanum Um BTÍ -> Lög/reglugerðir