Breytt keppnisfyrirkomulag
Samkvæmt ákvörðun stjórnar BTÍ verður breyting gerð á keppnisfyrirkomulagi í vetur með það að markmiði að fjölga leikjum án þess að lengja keppnistíma í hverri umferð. Eins og síðasta keppnistímabil er keppt í þremur deildum í karlaflokki og einni deild í kvennaflokki.
Karladeildir: Í nýju fyrirkomulagi verða leiknir allt að 10 leikir í viðureign, fyrst 6 einliðaleikir, svo tvíliðaleikur og að lokum 3 einliðaleikir. Vinna þarf 6 leiki til að vinna viðureign. Þrír til fimm leikmenn leika hverja viðureign. Þrír sömu leikmenn spila alla einliðaleikina en frjálst er að velja hvern sem er úr fimm manna liði í tvíliðaleikinn. Spila skal hverja viðureign á tveimur borðum. Nýtt fyrirkomulag á því ekki að taka mikið lengri tíma en í fyrra fyrirkomulagi. Spilaðar verða tvær umferðir í öllum deildum.
Keppnisfyrirkomulag í karladeildum:
Heima | Gestir | |
Leikur 1 | A | Y |
Leikur 2 | B | Z |
Leikur 3 | C | X |
Leikur 4 | A | Z |
Leikur 5 | B | X |
Leikur 6 | C | Y |
Leikur 7 | Tvíliðaleikur | Tvíliðaleikur |
Leikur 8 | A | X |
Leikur 9 | B | Y |
Leikur 10 | C | Z |
Liðið sem fyrr er að sigra 6 leiki vinnur viðureignina. Staðan 5-5 er jafntefli og gefur það eitt stig í töflu en sigur veitir tvö stig. Engar breytingar eru leyfðar á niðurröðun eftir að viðureignin er hafin.
Kvennadeild: Í kvennaflokki eru lið skipuð tveimur leikmönnum með það að markmiði að fjölga liðum í kvennadeild. Í nýju kerfi verða alltaf spilaðar fimm leikir hvernig sem staðan er. Tveir einliðaleikir, einn tvíliðaleikur og önnur umferð með einliðaleikjum.
Keppnisfyrirkomulag í kvennadeild:
Heima | Gestir | |
Leikur 1 | A | X |
Leikur 2 | B | Y |
Leikur 3 | Tvíliðaleikur | Tvíliðaleikur |
Leikur 4 | A | Y |
Leikur 5 | B | X |
Klára skal alla 5 leikina. Hver sigur gefur stig í töflu. Svo 5-0 sigur gefur 5 stig í töflu fyrir sigurlið og 0 fyrir tap, 4-1 sigur gefur 4 stig í töflu og eitt fyrir tap liðið. Tveir leikmenn skulu vera í liði en leyfilegt verður að bæta við nýjum leikmönnum í tvíliða.