BTI 40 ára. Æfingabúðir og þjálfaranámskeið í september. Skráning.
Föstudaginn 31. ágúst nk. kemur til landsins á vegum ETTU/ITTF sænski ofurþjálfarinn Emanuel Christiansson.
Það sem Emanuel hefur m.a. tekið sér fyrir hendur:
– Annast menntun þjálfara í Svíþjóð f.h. sænska borðtennissambandsins (núverandi starf).
– Mótstjóri á heimsmeistaramóti yfir 40 ára í Stokkhólmi Svíþjóð júní 2012.
– Þjálfaranámskeið í Suður Ameríku (El Salvador, Venezuela og víðar), Suður Afríku, Nýja Sjálandi, Ástralíu, Grikklandi, Tahiti, Bahrain og víðar.
– Landsliðþjálfari Finna.