BTÍ leitar að verkefnastjóra
Borðtennissamband Íslands auglýsir eftir skipulögðum verkefnastjóra með góða samskipta- og tölvufærni sem geti aðstoðað við ferða- og gistibókanir og önnur tilfallandi verkefni fyrir BTÍ. Þóknun er samkvæmt samkomulagi.
Áhugasamir eru beðnir um að senda umsóknir á [email protected] fyrir 7. október nk. og taka fram hvaða reynslu umsækjandi hafi af sambærilegum verkefnum.