Butterfly unglingamótaröð HK og PingPong.is
Butterfly mótaröð HK og PingPong.is samanstendur af þrem mótum í vetur og 8 efstu í hverjum flokki keppa svo á lokamóti í vor þar sem veitt verða vegleg verðlaun frá Butterfly. Sunnudaginn 6. apríl er komið að þriðja mótinu í mótaröðinni.
DAGSKRÁ
10:00 11 ára (2013) og yngri kk&kvk
10:00 12-13 ára kk&kvk 2012-2011
13:00 14-15 ÁRA KK&KVK 2010-2009
13:00 16-18 ÁRA kk&kvk 2008-2006
Leikið verður í riðlum. 3-5 lotur og fara tveir efstu keppendurnir upp úr hverjum riðli. Eftir að riðlakeppni lýkur verður leikið með einföldum útslætti.
Þátttökugjald 1.500 kr. greiðist á staðnum
Mótsstjórn: Reynir Georgsson, Óskar Agnarsson og Garðar Marlmquist. Yfirdómari er Bjarni Bjarnason
Veitt verða verðlaun fyrir 4 efstu sætin í hverjum flokki. Leikið verður með hvítum Stiga 3ja stjörnu kúlum.
Skráningar skal senda á bordtennisdeildhk@gmail.com fyrir kl. 22 föstudaginn 4. apríl
Dregið verður í Íþróttahúsi Snælandsskóla laugardaginn 5. apríl