Byrjendamót Borðtennisdeildar KR 9. nóvember 2025
Borðtennisdeild KR heldur byrjendamót sunnudaginn 9. nóvember 2025 í Íþróttahúsi Hagaskóla, Nesvegi 3, 107 Reykjavík.
Tímaáætlun
kl. 08:00 Húsið opnar.
kl. 09:00 1. – 6. bekkur strákar byrja.
kl. 09:30 1. – 6. bekkur stelpur byrja.
kl. 10:00 7. – 10. bekkur stelpur og strákar byrja.
kl. 11:00 Fullorðinsflokkar kvenna og karla hefja leik.
Keppnisfyrirkomulag
● Ef of fáir skrá sig í einn flokk mun mótstjórn sameina flokka til þess að fjölga leikjum.
● Keppt verður í 4-5 manna riðlum í öllum flokkum, þar sem efstu 2 fara áfram í beinan
útslátt.
● Leiknar verða 3-5 lotur í öllum flokkum, þar sem þarf að vinna 3 lotur til að vinna leikinn.
Skráning
Skráning fer fram í gegnum skráningarform KR. Skráningarformið má finna hér:
https://forms.gle/Jgu54evdv9Lpuitn8
Ef skráningarformið virkar einhverra hluta vegna ekki má senda skráningu með tölvupósti á netfangið [email protected] og [email protected]. Í skráningu skal taka fram fullt nafn
keppanda, kennitölu, félag og einnig skal taka skýrt fram í hvaða flokkum viðkomandi vill keppa. Skráningafrestur er til fimmtudagsins 6. nóvember kl 19:00.
Röðun
- Raðað verður í riðla fyrir mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla, fimmtudaginn 6. nóvember kl 20:00.
- Raðað verður samkvæmt keppnisreglum BTÍ þar sem að lágmarki 4 leikmenn fá röðun í hverjum flokki. Leikið verður með hvítum Stiga 3ja stjörnu plastkúlum.
Þátttökugjöld
- 2000kr fyrir alla flokka.
Keppendur skulu greiða þátttökugjöld rafrænt á bankareikning Borðtennisdeildar KR:
– Bankareikningur: 0137-26-008312,
– kennitala 661191-1129.
Annars í síðasta lagi á mótsstað áður en keppni hefst.
Setjið í skýringu við greiðsluna fyrir hvaða leikmann greitt er. Sendið afrit [email protected].
Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir efstu fjögur sætin í öllum flokkum. Þátttökuverðlaun verða gefin í flokknum 1. – 6. bekkur stelpur og strákar.
Mótstjórn:
- Ársól Clara Arnardóttir, gsm. 867-0022, [email protected]
- Karl Andersson Claesson, gsm. 845-8675, [email protected]
- Kristjana Áslaug Káradóttir Thors, gsm. 823-4561, [email protected]
Yfirdómari verður kynntur síðar.


