Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Coca Cola mótið í borðtennis

Coca Cola mótið í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu Laugardaginn 1. apríl 2023.

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki og leikið verður með 3ja stjörnu kúlum.

Dagskrá mótsins:

Laugardagur 1. apríl:

  • kl. 10:00 Eldri flokkur karla 60+
  • kl. 10:30 1. flokkur karla og kvenna
  • kl. 12:00 2. flokkur karla og kvenna
  • kl. 13:00 Meistarafl. karla og kvenna

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti. Heimilt er að leika í tveimur flokkum.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1.500- í hvern flokk.

Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 30. mars kl 17:00 og skal senda skráningar á netfangið [email protected] eða sms skeyti í síma 8940040 fyrir þann tíma. Hægt er að greiða fyrir keppni með millifærslu á reikning Borðtennisdeildar Víkings: Kennitala 6603850379, reikningsnúmer: 0525-26-3693

Yfirdómari: Árni Siemsen
Mótsstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen, Jóhann Bjarnason, Eyrún Elíasdóttir

Dregið verður í mótið fimmtudaginn 30. mars kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu

Með Borðtenniskveðju
F.h. Borðtennisdeildar Víkings
Pétur Ó. Stephensen

Auglýsing Coca Cola mótið

Aðrar fréttir